Latest Entries »

Jóla- og afmælisgjafa óskalistinn minn

  1. Gælu-dverghamstur – alveg eins og Strípa
  2. Búr fyrir gæluhamsturinn – helst með nokkrum hæðum og hjóli!
  3. Mat fyrir gæluhamsturinn
  4. Kúla fyrir gæluhamsturinn að labba um í
  5. Leikfangahús fyrir gæluhamsturinn (þetta gæti allt eins verið óskalisti fyrir hamsturinn minn!)
  6. Mynd (til að setja upp á vegg) af hömstrum
  7. Sætur jólahamstur - mynd fengin að láni á http://www.flickr.com/photos/chmurka/

    Sætur jólahamstur - mynd fengin að láni á http://www.flickr.com/photos/chmurka/

  8. Bækur um músina Geronimo Stilton á íslensku (það er sniðugt að hafa mús á eftir hamstrinum – þau eru nú einusinni bæði nagdýr!)
  9. Heilsubælið í Gervahverfi – serían á DVD  (en klikkhausar á eftir sætum nagdýrum – ekki svo góð samsetning!)
  10. Geisladiskar með Selena Gomez og Demi Levato (Disney leikarar)
  11. Rúmföt með WWE (wrestling) eða hamstra eða Star Wars myndum
  12. Boxers flannel náttbuxur – mamma segir að ég þurfi stærð 146…
  13. Playstation 3 leikjatölva
  14. PSP leikjatölva (sem maður heldur á – ekki tengd við sjónvarpið – maður getur sem betur fer tekið það með sér hvert sem maður vill!)
  15. Leikir í leikjatölvurnar 
  16. Leikir í Playstation 2 leikjatölvuna (er með hana í láni eins og er)
  17. Skilaboð frá mömmu:  ath að leikjatölvur og leiki þyrfti að kaupa í USA eða Canada svo þeir passi við sjónvarpið / rafspennuna hér
  18. Íslenskt grænmeti (maður fær ekki mikið af því hér!)
  19. Hnetubrjót – af því hamsturinn sem Daði vinur minn á borðar valhnetur
  20. Góð og flott vetrarúlpa
  21. Silkinærföt (síðar buxur og síðerma bolur – mín eru orðin götug af mikilli notkun!)
  22. Bók um hvernig maður á að sjá vel um hamsturinn sinn
  23. Íslenskar bækur – til dæmis líst mér vel á þessar í bókatíðindunum:
  24. Drekahellir í Vatnajökli, eftir Hafdísi Ósk Sigurðardóttur
  25. Galdrasteinninn, eftir Hörpu Dís Hákonardóttur
  26. Gásagátan, eftir Brynhildi Þórarinsdóttur
  27. Hetjur, eftir Kristínu Steinsdóttur
  28. Jón Ólafur með dauðann á hælunum, eftir Kikku
  29. Og þau lifðu hamingjusöm allt til æviloka… eða hvað?, eftir Huginn Þór Grétarsson
  30. Spurningabókin 2009
  31. Bestu barnabrandararnir
  32. Stóra snillingabók skólavefsins
  33. Ballið á Bessastöðum, eftir Gerði Kristnýju

Mér dettur ekkert meira í hug í bili – en skal bæta við listann ef ég finn eitthvað!
Mamma bendir líka á að sniðugt sé að spyrja hana hvort hún viti til þess að eitthvað á listanum sé þegar frátekið… Það er erfitt að skipta jólagjöfum héðan!

Viðbætur 24. nóv:

  1. Trommusett
  2. Míkrófónn og upptökutæki
  3. Hljómborð og magnari
  4. Hljóðblandari – til að blanda öllum hljóðfærunum saman

Viðbætur 18. des:

  1. WWE leikurinn fyrir playstation 2  (verður að vera keypt í Kanada)

Punktablogg hið fyrsta

  • Það er mjög gaman hérna.
  • Mér gengur mjög vel í skólanum.
  • Mér gengur vel að eignast vini.  Og  vinirnir mínir heita Grace, Ethan, Junu (sem er kóreskur), Jacob, Cam, Andrej(sem er sagt Andrei).
  • Ég er í körfuboltaliði sem heitir Suns.
  • Æfingar á föstudögum og leikir við önnur lið á mánudögum.

Kvefið

Nú er ég með kvef

en lítið ég sef

hor lekur úr nefinu

hvað virkar best við bévítans KVEFINU!

 

Bréf til gamla bekkjarins míns

Þetta bréf skrifaði ég til gamla bekkjarins míns í Lækjarskóla í fyrradag:

Kæri gamli bekkur,

Það er mjög gaman hérna úti í Kanada.  Nú á ég heima í Victoria, sem er höfuðborg Bresku Kólumbíu, sem er eitt af fylkjum Kanada.  Við búum í View Royal, sem er hluti af höfuðborgarsvæðinu (svipað og t.d. Hafnarfjörður).

Við mamma hjá einni súlunni.

Við mamma hjá einni súlunni.

Ég byrja í skólanum á morgun, 8. september.  Skólinn er nefndur eftir bænum mínum og heitir View Royal Elementary.  Hér eru krakkar frá fimm ára upp í fimmta bekk, en í sjötta bekk fara þau í annan skóla.  Ég er búinn að fara einu sinni að skoða skólann og finnst hann voðalega flottur.

Áður en við komum til Victoria flugum við til Seattle sem er borg í Bandaríkjunum.  Fór þar í dýragarð sem heitir Woodland Park Zoo og sá þar mörg dýr.  Þar á meðal má nefna vampíruleðurblöku, kómódó dreka, risa kyrkislöngu, hrægamma, górillur, ljón, fíla, gíraffa, zebradýr, skallaerni (sem ég tók mynd af og sendi ykkur), uglur og skógarbirni.

Ég ligg á stærsta squashi sem ég hef séð!

Ég ligg á stærsta squashi sem ég hef séð!

Í Victoria er ýmislegt að sjá og gera, eins og t.d. skordýrasafnið Bug Zoo sem mér fannst ótúlega skemmtilegt, þar fékk maður að halda á pöddunum og klappa þeim.  Ég sá eitt ótrúlega skrýtið, hvæsandi kakkalakka.  Og svo líka engisprettu sem lítur út eins og trjágrein!

Ég hef farið nokkrum sinnum að synda í vötnum í nágrenninu og séð sinfóníuhljómsveit Victoriu spila á pramma í sjálfri höfninni.  Við höfum farið í lítinn bæ sem heitir Duncan og skoðað tótemsúlur, enda er Duncan kallaður bær tótemsúlnanna.  Efst á þeim tótemsúlum sem þið sjáið er fugl sem Kanadamenn kalla thunderbird (eða þrumufugl).  Kanadískar þjóðsögur segja að hann hafi flogið yfir garða hjá fólki og gripið börn og flogið með þau burt.  Hver veit hvort þeir séu til í alvöru?

Hér hef ég kynnst því að fá glænýjan maís sem maður rífur laufin utan af og sýður í potti – ekki frosið eins og heima á Íslandi – og þetta er algjört sælgæti!

Tvisvar á dag fer lest framhjá húsinu okkar.  Lestarstjórinn flautar nokkrum sinnum þegar hann nálgast húsið, því rétt hjá húsinu er stoppistöð fyrir lestina.  En við erum orðin vön henni og sofum hana stundum af okkur þegar hún fer framhjá klukkan 8:15 á morgnana.

Ég að leika mér í Thetis Lake.

Ég að leika mér í Thetis Lake.

Hér sjáum við alls konar kvikindi, t.d. maríubjöllur sem við sáum á fíkjutré og heila skúfhænufjölskyldu sem kom í heimsókn í garðinn okkar.  Við höfum líka hjólað mikið um og í eitt skiptið gátum við teygt okkur upp í næsta tré og náð í epli!

Við fórum eina helgi til Vancouver að hitta vinafólk okkar og fórum þá m.a. á ströndina, sem var mjög gaman.

Á laugardagskvöldum bökum við alltaf pizzu og þarsíðasta laugardag gerði ég pizzukarl.

Um síðustu helgi fórum við á risastóra sveitahátíð – Saanich Fair – og þar fékk ég að klappa smáhesti og sá þar reiðkeppni með vagna þar sem yngsti keppandinn var sjö ára!  Ég fékk líka að skoða svartar endur með grænni slikju, grasker með vörtur, bökuátskeppni, risastórt squash (sem ég klifraði upp á) og fleira risastórt grænmeti.  Nú veit ég líka hvernig hunang er búið til. 

Á hátíðinni voru líka tívolítæki sem ég fékk að fara í.

Þið megið endilega hafa samband við mig einhvern tímann, netfangið mitt er marus [hjá] mikkivefur.is, ég blogga á http://marusbjorgvin.wordpress.com/ og ég er líka á Facebook.

Hlakka til að heyra í ykkur!

Ykkar gamli vinur og bekkjarbróðir,
Márus

Skothelt ljóð

Skothelt vesti, skotheld brók,
skotheldar buxur, skotheld peysa,
pabbi minn núna skuldar mér kók.

Óli

Ég fór að hitta Óla,
hann á sko marga kjóla.
Við hittum hann oftast á fyrsta degi jóla,
eftir jól fer hann í líkamsrækt að hjóla.
Þetta var ljóðið um hann Óla.

Bloggið byrjað

Ég er byrjaður að blogga.  Ég  er mjög glaður.  Gaman er í Victoria, BC. 

Ég er búin að eignast vini.  Þar á meðal Ísól,Snorri,Ísabella,Óskar,Sif,Sigurjón,Selma,Daði og Óðinn.

Og þennan vin eignaðist ég í dýragarðinum í Seattle.

Ég er þessi með húfuna.

Ég er þessi með húfuna.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.