Category: Sumarblogg


Sumarfrí – fleiri dagar!

Síðan ég bloggaði síðast hefur geðveikt margt skemmtilegt gerst.

  • Fyrst fórum við á karate æfingu hjá Isaac, langbesta vini mínum hérna, sem ég kynntist fyrst á körfuboltaæfingu.  Mér fannst karate geðveikt skemmtilegt!  Isaac er í svartabeltis-klúbbnum, sem er dálítið skrítið, því hann er að vinna að því að fá svarta beltið.
  • Isaac kom svo heim til okkar til að gista hjá okkur í eina nótt.  Við horfðum á The Spy Next Door um kvöldið, og hún var æðislega skemmtileg! Það skemmtilegasta er að Maggi Scheving leikur aðal vonda gaurinn!   Við fengum heimagerða Banana Cream Pie í desert, og hún var ótrúlega góð!  Kakan var líka í tilefni af hálfs árs afmælinu hennar Gýpu, hamstursins míns, en við erum alltaf að reyna að vinna í að kaupa handa henni hálfs árs afmælisgjöf.  Það verður að vera svona hlaupakúla, því kúlan hennar datt í gólfið og brotnaði – örugglega af því hún var búin að klessa henni of mikið utan í veggina þegar hún fékk að vera laus í henni.
  • Áður en Isaac fór þá URÐUM við að horfa á Spánn-Holland, úrslitaleikinn í HM í fótbolta.  Það var líka dálítið fyndið því það voru þrír sem héldu með Hollandi (pabbi, Isaac og Avi, pabbi Isaacs, sem var kominn til að sækja hann), og bara ég sem hélt með Spáni, og samt vann Spánn!   Þegar Iniesta skoraði markið ótrúlega, þá varð ég svo ógeðslega spenntur að ég var næstum búinn að rota mig af því að banka hausnum mínum aftur og aftur í sófann!
  • Við fórum á Mexíkó hátíð niðrí bæ!   Þar var dansað og sungið og trallað og trungið (hihi).  Ég fékk mér krap – tvær bragðtegundir – og mamma og pabbi fengu sér frappocino frá Starbucks (það er svona frosið kaffi).
  • Á þriðjudaginn í síðustu viku fórum við á Marine Day á ströndinni við Witty’s Lagoon í Mechosin.  Þar reyndi ég að veiða krabba og smáfiska í litlum tjörnum (tide pools), við fengum okkur nesti, og fylgdum leiðbeiningum til að finna Mystery Creature, eða leynidýrið, sem reyndist vera marglytta.  Það var æðislegt veður, og ógeðslega gaman að vaða í sjónum, sem sumsstaðar var hlýr og sumsstaðar kaldur.

Ég segi ykkur meira næst!!

Sumarfrí, dagur 5

Á föstudaginn tókum við upp afmælisvideo fyrir Hall, vin okkar sem verður 40 ára á mánudaginn.  Videoið var svo spilað í veislunni og margir nutu þess.

Áður en við gerðum það fórum við í picknick en við fórum ekki langt út úr húsi því ég var með magapest og það er ekki alls staðar sem maður getur hlaupið inn á klósett.  Með “ekki langt út úr húsi” meina ég að við vorum úti á palli með opnar svalardyr, svo ég gat bara hlaupið inn.  Við vorum með soðið brauð og hangikjöt sem amma Gurrý og Steini afi höfðu komið með handa okkur frà Ìslandi.

Summer vacation, day 4

Today (Thursday) I went to Sif and Sigurjón’s house where I was was playing in a tiny water pool with Selma.  We brought corn chips and a watermelon which me and Selma almost ate whole.  We were always begging for more.

During the evening, while my mom went to meet some friends, me and daddy stayed home and watched a really, really funny documentary on soccer, starring John Cleese.  And before we did that we watched a once in a lifetime show called The Decision.  It was like a talk show, where LeBron James told the whole world where he was going to play next season, and he chose the Miami Heat.

At the beginning of the documentary, there was this guy yelling “Who are you? Who are you?” at John Cleese, and then John Cleese said “Excuse me a moment” and poked him in the eye.  It was really funny.

Hope seeing you tomorrow.

Sumarfrí, dagur 3

Í dag horfði ég á Spán vinna Þýskaland í fótbolta með einu frábæru marki gegn engu frábæru marki í undanúrslitum HM í S-Afríku.  Eftir leikinn fórum við í gleraugnabúð og fengum nýja umgjörð fyrir gleraugun mín.

Um kvöldið fórum við mamma út  í hafnabolta en það var of heitt til að vera úti um daginn þannig að við þurftum að fara út að spila um kvöldið.

Heyrumst á morgun.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.