Á föstudaginn tókum við upp afmælisvideo fyrir Hall, vin okkar sem verður 40 ára á mánudaginn. Videoið var svo spilað í veislunni og margir nutu þess.
Áður en við gerðum það fórum við í picknick en við fórum ekki langt út úr húsi því ég var með magapest og það er ekki alls staðar sem maður getur hlaupið inn á klósett. Með “ekki langt út úr húsi” meina ég að við vorum úti á palli með opnar svalardyr, svo ég gat bara hlaupið inn. Við vorum með soðið brauð og hangikjöt sem amma Gurrý og Steini afi höfðu komið með handa okkur frà Ìslandi.

Sæll Márus.
Þú verðu að kenna henni körfubolta þegar þið hittist næst.
Gaman að lesa um það hvað þú ert að gera. Við Nadía hugsum oft til þín. Hún er að æfa fótbolta og hefur gaman af því. Vill alltaf fara í fóbó við mig þegar við hittumst.
Ég fylgist með næstu færslum hjá þér.
Bless í bili
Alex frændi.
það er svo gaman að sjá hvað þú ert að gera á hverjum degi
elsku Márus minn ! XXXXXOOOOXOXOXO
Hæ elsku Márus, gaman að fá að fylgjast með
Björg
Elsku Márus, hlakka til að lesa meira.